Blámi segir frá

Raunasögur Bláma og Lukku Láka beint úr fangaklefanum

Wednesday, August 06, 2008

Innrás!

Já nú er okkur ekki skemmt.

Fangaverðirnir komu með nýjan fanga í fangaklefann. Þessi er frekar lítill, bröndóttur og ég get svo svarið það, krúttaralegur kettlingur. Hann er nú frekar merkilegur með mig og þó að við reynum að siða hann til heldur hann að hann eigi fangaklefann! Ég meina það, þvílík hneisa.

Sem betur fer lokuðu fangaverðirnir hann í einangrunarklefa á nóttunni svo við þurftum nú ekki að keppa við hann um athygli þeirra allan sólarhringinn.

Eftir nokkra daga var hann nú orðinn nokkuð stilltur og hættur að urrra á Lukku Láka, sem var bara alls ekki hrifinn af þessum kettlinga bjána. Ég var nú ekki sérlega hrifinn af honum heldur, hann yfirtók til dæmis vatnsstöðina mína og reyndi að éta kexið mitt.

Eitthvað hafa fangaverðirnir séð eftir að hafa tekið að sér þennan bjána og skiluðu honum aftur í hans fangaklefa.

Yes! Við eigum okkar klefa aftur.