Blámi segir frá

Raunasögur Bláma og Lukku Láka beint úr fangaklefanum

Wednesday, January 23, 2008

Út í óvissuna.

Við erum komnir í nýjan fangaklefa!

Fyrir nokkrum dögum var okkur pakkað í ferðafangelsið. Fangaverðirnir fóru með okkur í þetta skrýtna farartæki sem þau kalla bíl. Þegar okkur var hleypt út vorum við í nýjum fangaklefa. Þessi klefi er miklu stærri og gríðarlegt svæði fyrir okkur félagana að skoða og sniffa...svo við vorum pínu skelkaðir. Við fundum okkur felustað undir rúmi og vorum þar allan daginn í þeirri von um að fangaverðirnir myndu skipta um skoðun og fara með okkur í gamla klefann. Næsta dag vorum við líka í varnarstöðu og létum fara lítið fyrir okkur og pössuðum okkur að hræða fangaverðina með því að fara í hungurverkfall.

Núna erum við búnir að dúsa hérna í 4 daga og það virðist ekki vera von til þess að við séum að fara neitt. Við erum því byrjaðir að eigna okkur svæðið og dreifa hárum til vonar og vara. Við gáfumst líka uppá hungurverkfallinu og látum okkur hafa það að éta sama kexið og var á boðstólnum í gamla fangaklefanum.

Við söknum gamla fangaklefans!!!!

Friday, January 11, 2008

Undarlegt!

Það er eitthvað undarlegt í gangi.

Núna eru fangaverðirnir alveg að tapa sér. Um daginn tóku þau uppá því að draga fram tóma pappakassa og byrja að pakka öllu lauslegu sem er í fangaklefanum í þá. Við höfðum ekki undan að fylgjast með hvað færi í hvern kassa og horfðum á eftir fangaklefadótinu hverfa smátt og smátt í kassana. Núna er í staðin þetta fína pappakassafjall í einu horninu á fangaklefa 1.
Það er svo sem ekkert leiðinlegt, gaman að skoða það vel og vandlega og sitja uppá hæsta kassa en ekki erum við að fatta af hverju þau eru að þessu?? Klefinn er gjörsamlega í rúst! Lukku Láki heldur að það standi eitthvað mikið til en ég er ekki viss. Á meðan við fáum ennþá kex þá erum við nokkuð rólegir.

Já...þetta er dularfullt...