Blámi segir frá

Raunasögur Bláma og Lukku Láka beint úr fangaklefanum

Saturday, October 27, 2007

Óboðnir gestir!

Ég er í miklu uppnámi!

Um daginn brá okkur heldur betur. Við vorum í mestu makindum í fangaklefanum okkar þegar allt í einu birtist kolsvart flikki fyrir utan gluggann. Við fórum strax í varnarstöðu, code red! Ég púffaði mig allan út og fnæsti mjög sannfærandi og Lukku Láki hvæssti grimmilega. Við vorum auðvitað ekki hrifnir af þessari boðflennu sem glennti sig fyrir utan gluggann OKKAR.

Hvaðan kom þetta skrímsli?? Ekki má gleyma að fangaklefinn okkar hefur verið órjúfanlegur í nær 5 ár þangað til nú og ekki má heldur gleyma að ástæðan fyrir því er auðvitað að fangaklefinn er uppá 3 hæð! Víst er jú slúttandi þak fyrir utan gluggann en aldrei fyrr hefur meira en smáfugl setið út á þessu þaki. Eftir smá eftirgrennslan og mikla eftirlitsvinnu við alla glugga, fundum við það út að þetta skrímsli var köttur nágrannans. Við settum upp eftirlitsvaktir í snarhasti.

Ég læt ekkert brjótast inní minn fangaklefa!