Blámi segir frá

Raunasögur Bláma og Lukku Láka beint úr fangaklefanum

Thursday, July 21, 2005

Hugrekkið uppmálað.

Jæja þar kom að því, ég gat ekki verið minni köttur en Lukku Láki.

Ég er búinn að vera fylgjast með fangavörðunum þegar þau fjarlægja kattarhárin okkar af gólfinu og húsgögnunum. Þau nota til þess frekar hávært tæki, með einhvers konar slöngu og stút á endanum. Ég hef verið frekar tortrygginn gagnvart þessari græju en Lukku Láki hefur alltaf stokkið til og látið strjúka sig allan með stútunum á endanun og finnst það greinilega mjög gott. Fangaverðirnir hafa rosalega gaman af þessu og skemmta sér konunglega við þessa yðju...sem ég held þau kalli að ryksuga.

Í dag lét ég loks verða af því! Ég labbaði hugrakkur upp að fangaverðinum sem var að ryksuga Lukku Láka og beið þar til röðin kom að mér. Ég skil ekki hvað ég hef verið hræddur við! Þetta var bara frekar þægilegt. Ég mun pottþétt láta ryksuga mig aftur.

Yes, I am the king!