Týpískur köttur eða??
Ég er í smá tilvistarkreppu.
Hvort á ég að vera...hinn týpíski köttur sem heldur sig í hæfilegri fjarlægð frá fangavörðunum eða hinn óhefðbundni mjúki knúsfíkill?
Ég bara ræð ekki við mig á köflum. Ég fæ svakaleg köst þar sem ég verð að fá mitt klapp og klór. Þetta vekur auðvitað allt of mikla athygli á mér að vera þrampa og þæfa svona fyrir fangaverðina. Fangaverðirnir eru reyndar skratti góð í að veita þessa þjónustu og ég hef náð að þjálfa þau ótrúlega vel. Þau eru alveg frábær í að finna hvar mér finnst gott að láta klóra mér og strjúka.
Hálf niðurlægjandi þessi knúsþörf en ég ræð bara ekki við mig. Í ofanálag mala ég eins og vitleysingur! Ég hef nú samt lúmst gaman af því að heimta þessa þjónustu við sólarupprás.
Þegar ég hugsa um það, er reyndar mjög ánægjulegt að sjá hversu góð tök ég hef náð á fangavörðunum.
Með þessum köstum geri ég þeim ókeift að gera nokkuð annað en að þjóna mér þegar ég vil mitt klapp, burtséð frá því sem þau eru að gera...kvölds og morgna...nótt sem nýtan dag....knúsfíkill...já...
...ekki spurning...I rule the place.

<< Home