Blámi segir frá

Raunasögur Bláma og Lukku Láka beint úr fangaklefanum

Friday, April 29, 2005

Lukku Láki Houndini

Við strákarnir erum klókir.

Lukku Láki hefur staðið í ströngum æfingum við að opna einangrunarklefann og loksins eru þessar æfingar farnar að bera árangur. Þetta er bara tær snild og ákaflega vel úthugsað hjá okkur að þjálfa með okkur svona sérstakan hæfileika sem nýtist einstaklega vel við flóttatilraunir.

Lukku Láki var eignlega sjálfkjörinn í þetta verkefni þar sem hann getur teygt sig lengra en ég. Hann hefur hreinlega ekkert fyrir þessu.
Fangaverðirnir eru varla búnir að loka einangrunarklefanum þegar Lukku Láki hendir sér á handfangið á klefanum og togar það léttilega niður. Ég held reyndar að fangaverðirnir séu stoltir af honum í laumi fyrir dugnaðinn.

Já...við erum bestir...